baggalútur - kósýkvöld í kvöld lyrics
skelfing er ég leiður á því að húka hér
ég hugsa að þú þurfir einhvern að strjúka þér
ég þrái það að komast klakklaust heim á ný
æ, komdu við í ríkinu – ekki gleyma því
ég ætla að byrja á því að demba mér í
furunála freyðibað
en ekki fara eitthvað að dúlla þér þar
þú veist mér leiðist það
+ þá kemst ég aldrei að
sæktu sloppana, ég skal poppa
það er kósýkvöld í kvöld
+ vídeó, rauðvín og ostar
sötrum rósavín, deyfum ljósin
það er kósýkvöld í kvöld
+ rólegheit, hvað sem það kostar
algert óhóf, spennulosun og spilling blind
sparistellið, franskar vöfflur – og hryllingsmynd
mér áskotnuðust vindlar, við skulum púa þá
ég væri til í pottinn, nennirðu að skrúfa frá?
meðan við kúrum saman tveir fær enginn
máttur skilið okkur að
æ, viltu auka leti mína og sækja
pínu meira sjokkólað?
+ og eitthvað útí það?
svæfðu krakkana, sæktu snakkið
það er kósýkvöld í kvöld
+ kavíar, rauðvín og ostar
sæktu flísteppið og rjómaísinn
það er kósýkvöld í kvöld
+ dejlighed, hvað sem það kostar
smelltu límonaði í sódastrímið
það er kósýkvöld í kvöld
+ kamparíís, kex og ostar
skеlltu donóvan á grammófóninn
það er kósýkvöld í kvöld
+ kærlighed, hvað sem það kostar
fáðu þér vinur minn, dass af gini
það еr kósýkvöld í kvöld
+ smávindlar, trúnó og ostar
ég var að hugsum, að fara úr buxum
það er kósýkvöld í kvöld
Random Lyrics
- ha dong-qn - after the love lyrics
- fletcher, james - quiet lyrics
- nameless 2745 - houdini lyrics
- kim eui jung - 이별이 사랑을 가르쳤나봐 (i broke up with someone i still love) lyrics
- dana lyons - our state is a dumpsite lyrics
- 吉澤嘉代子 (kayoko yoshizawa) - ひゅー (hyuu) lyrics
- mcxaví - falapacarai lyrics
- joetime - qualifikation lyrics
- giack bazz - horrible town lyrics
- olszakumpel - mapa lyrics