
bubbi morthens - ballaðan um bræðurnar lyrics
fjaran togaði í bræður tvo sem vildu leika sér
aldan hjalaði saklaus, sólin skein á gler
allan daginn sér undu glaðir með skeljarnar
á meðan norðanvindurinn ýfði upp öldurnar
um kvöldið komu ekki heim út í rökkrið pabbi fór
kallandi út í myrkrið, kominn var haugasjór
hann æddi niður í fjöruna en fann þar enga slóð
brimið flæddi upp á garðinn þar sem hann fölur stóð
við hrópuðum út í sortann en enga hjálp var að fá
uppi á steini sátum við kallandi ykkur á
aldan kom, við urðum hræddir mamma mín
fyllti síðan vitin, tók okkur heim til sín
fjöruna gengu mennirnir, gengu dag og nótt
ekki einni sálu í þorpinu var þá daga rótt
síðan dofnaði vonin, sorgin kom köld
með skuggalanga fingur og sín svörtu tjöld
föður bræðranna dreymdi draum þar sem hann sá
þá liggjandi í h+llisskúta heimilinu rétt hjá
í fangi hvors annars þeir lágu, augu hans urðu aum
í þrjár nætur til viðbótar hann dreymdi sama draum
við hrópuðum út í myrkrið en enga hjálp var að fá
uppi á steini sátum við kallandi ykkur á
aldan koma við urðum svo hræddir mamma mín
fyllti síðan vitin, tók okkur heim til sín
hann fór á fjórða degi og fann þá á þeim stað
sem hann sá í drauminum, hann þakkaði drottni það
í sandinum þeir lágu, andlitin friðsæl að sjá
hafið þennan dag var slétt og aldan blárri en blá
við vöknuðum og sólin skein svo undur skær
skein á græna haga, yfir öllu f+gur blær
pabbi og mamma, drottinn dró okkur í var
í drottins garði göngum nú, við bíðum ykkar þar
Random Lyrics
- sonic animation - is that a tear lyrics
- royal fish - i love my car lyrics
- places to hide - michael jordan lyrics
- bluume & l1stable - grinchy freestyle lyrics
- hoodsasuke - ccxxii lyrics
- terry black - ridin' a daydream lyrics
- nolwenn leroy - occident lyrics
- tranque - роботы не видят сны (robots don't dream) lyrics
- 2heaven - .44 crusader lyrics
- k.a.a.n. & jonah renna - claustrophobic lyrics