
bubbi morthens - brunnurinn okkar lyrics
Loading...
frystihúsin leggja upp laupa
lánin streyma að
bátar kroppa kvótann
og kasta á sama stað
sís það bindur bændurna
sem borga skuldirnar
það er dýrlegt að drottna
og dæma af þeim jarðirnar
fólkið inni á fjörðum þrjóskast
fjöllin sín elskar það
bændur berjast áfram
bjóða kreppunni heim í hlað
menn þræla fyrir lúsarlaun
langan vinnudag
handa þessu fólki flyt ég
og fjörðunum þetta lag
það er gott að búa í gullborg
en gleymum samt ekki því
að þorpin byggðu brunninn þann
sem borgin sækir í
án bátanna væri baráttan
um brauðið löngu dauð
ef öngvir yrktu jörðina
yrðu heimilin snauð
Random Lyrics
- the stamps - free my mind lyrics
- ghilas - tris lyrics
- quinn - no more65 lyrics
- jaden decker - coming back around lyrics
- hxiley - the day i killed myself lyrics
- weezer - across the sea (live in japan) lyrics
- hxiley - eyes all around this town lyrics
- hall johnson - omwo lyrics
- ghostnyx - a smart mind is dangerous lyrics
- koshka - infancia lyrics