
bubbi morthens - friðargarðurinn lyrics
[verse 1]
mjólkurhvít ský þau skríða yfir bæinn
skuggi undir húsvegg lifnar við
hér á meðal trjánna í garðinum græna
geta allir fundir ró og frið
mosavaxin trén þau tala við mig
taka burtu stressið úr huga mér
yndislegar sögur mér segja
að sálir dauðra lifi í sér
[chorus]
í friðargarðinum gefur að líta
gamlar konur arfann slíta
rónar drekka deginum að eyða
dópaðan ungling ástina leiða
fólk á göngu fyrir háttinn
þar fékk hann þórbergur dráttinn
í friðargarðinum
í friðargarðinum
í friðargarðinum
í friðargarðinum
[verse 2]
ég sé ártöl höggin í hrjúfa steina
heiðnar rúnir, engla og ský
nöfn á fólki fallin í gleymsku
falin milli trjánna garðinum í
mjólkurhvít ský þau skríða yfir garðinn
skuggar undir trjánum lifna við
kött sé ég hljóðlaust klifra birkið
kvöldið færir huganum frið
[chorus]
í friðargarðinum gefur að líta
gamlar konur arfann slíta
rónar drekka deginum að eyða
dópaðan ungling ástina leiða
fólk á göngu fyrir háttinn
þar fékk hann þórbergur dráttinn
í friðargarðinum
í friðargarðinum
í friðargarðinum
í friðargarðinum
[instrumental bridge]
[chorus]
í friðargarðinum
í friðargarðinum
í friðargarðinum
í friðargarðinum…
Random Lyrics
- slo czizu - chłód lyrics
- sam foster - bozeman lyrics
- david quiñones - mystery love lyrics
- лиза чернова (lisa chernova) - выгораю (burn out) lyrics
- scarlinho matança - broken heart 2 lyrics
- ellie blackout - fetish lyrics
- d$ luqi - diário de um serial killer lyrics
- free arlo - getting over u lyrics
- joshu joshu - quiero llegar lyrics
- starnix reemx - melanin lyrics