
bubbi morthens - grafir og bein lyrics
fæddist eins og gerist og gengur
grátandi, hraustur drengur
fyrsta minning, lykt af mömmu
þekkti aldrei afa og ömmu
fyrsti kossinn, fyrsta glasið
fríðleikspiltur, prúða fasið
misnotaður, nóttin svarta
illa kalinn aldrei kvarta
drukkinn faðir, fælni og ótti
föstudagar langur flótti
kanasjónvarp, sögubækur
lífið samt, tært sem lækur
sjáðu til
jú ég skil
þetta er saga lífs míns
þetta er saga lífs míns
brotið nef, blóðið lekur
bölvaður var dæmdur sekur
vinn’ í fiski. verbúðalíf
hjartað vantar varnarhlíf
hass í pípu, kók á gleri
einman’ á köldu skeri
kynlífsfíkn, alkahólisti
á endanum hjartað missti
sjáðu til
jú ég skil
þetta er saga lífs míns
þetta er saga lífs míns
þráði ofar, frægð og frama
samt var allt, við það sama
þó fíknir mínar allt sitt fengu
frægðin breytti hjá mér engu
moldarkeimur fylgir þér maður
myrkrið var líka minn staður
hol að innan öll við svörum
að okkur hjörtu eru þakin örum
grafir og bein blasa við þér
bræður og systur farga sér
saga mín er saga okkar
saga þín er saga okkar
sjáðu til
jú ég skil
þetta er saga lífs míns
þetta er saga lífs míns
þeir dauðu muldra ofurlágt:
þetta er saga lífs míns
Random Lyrics
- black eyes - under the waves lyrics
- girl wilde - chris evans lyrics
- imnotleook - ashes lyrics
- некий поэт (nekiy poet) - сила (power) lyrics
- rk - 4 saisons lyrics
- theo katzman - superman lyrics
- it's murph & nat slater - chemicals lyrics
- ritzly - solid ground lyrics
- moonchild & astyn turr - ride the wave lyrics
- arkanoh el karapaika - camino lyrics