
bubbi morthens - kona lyrics
[verse 1]
kannski er ég enn á veiðum
jafnvel orðinn sjálfur bráð
lokað hef ég öllum leiðum
með regnbogans silfurþráð
vorið fæddist til þess að deyja
gefa eitthvað nýtt
ég heyrði vindinn við kornið segja:
“sumarið verður hlýtt”
[chorus]
viska þín var viska barnsins
sem flestir hafa misst
þrungin speki öldungsins
sem leit heiminn manna fyrst
þú dansaðir á ljósinu
með augun full af von
sem upphaf sitt átti í betlehem
en dó í babylon
[verse 2]
veistu, ég sakna náttanna
með sinn eina sanna lit
gleðióm fuglanna
í trjánum ljúfan þyt
ég leita þín í öllum þeim
andlitum sem ég sé
stundum býð ég stúlku heim
sem veit ekki að ég er ég
darararararaaraa…
[verse 3]
í kyrrðinni dafnar og lifir sá kraftur
sem hjartað hafði misst
ef þögnin gæti fært mig aftur
á þann stað sem ég sá þig fyrst
skuggarnir sofa á veginum úti
sporin eru þar enn
sem mörkuð voru í svörtu fjúki
ég þarf að ganga hann senn
trója átti helenu fögru
akk!lles hælinn sinn
trójuhestsins augu störð
þráðu að komast inn
eins og herirnir við eldana biðu
bíð ég í minni trú
játa því sem augun tryðu
að það gæti verið þú
[chorus]
viska þín var viska barnsins
sem flestir hafa misst
þrungin speki öldungsins
sem leit heiminn manna fyrst
og þú dansaðir á ljósinu
með augun full af von
sem upphaf sitt átti í betlehem
en dó í babylon
darararararaaraa…
Random Lyrics
- lim lali - nevada lyrics
- sin boy - lazarat lyrics
- counterfeitboy - luv me lyrics
- asmi - earth meal lyrics
- johnny quenno - nobody else lyrics
- rick astley - whenever you need somebody (reimagined) lyrics
- kristov - дель-соль-вэлли (del-sol-valley) lyrics
- wildan farhat - lonely lyrics
- warez - ichiban freestyle lyrics
- cris williamson - number one lyrics