
bubbi morthens - leiðin liggur ekki heim lyrics
Loading...
við sjónarhringinn bátur bíður
við bakkann bundinn og tíminn líður
kolsvört dögun og eitt orð
ertu tilbúinn að fara um borð?
við endamörkin máninn gulur
í myrkri skrifar fölur, dulur
spor þín telur og eitt orð
ertu tilbúinn að fara um borð?
ég sit við krossinn og kyssi þig
köld sorgin hún bítur
lögmál guðs í kvöl þína grafið
ég græt því ég veit þú hlýtur
að vita að englarnir fljúga ekki í nótt
og leiðin liggur ekki heim
hvíslandi raddir, hvítir sokkar
harður stóll, þínir blautu lokkar
morfínhaf sem hylur taugar
í höfði þínu vakna draugar
sem finna ekki leiðina heim
ferð þín er hafin og báturinn bíður
sál þín eins og skuggi líður
á hvítu líni þú liggur hrein
í nótt þú siglir frá landi ein
og leiðin liggur ekki heim
Random Lyrics
- sara evelyn - culto racional lyrics
- c-kan & eme malafe - bandidos lyrics
- micah christopher - land of the living lyrics
- soro b & xavo - esas semanas lyrics
- panda hikari & lo mrrk - she wore her lies like devil wings lyrics
- kral sinan - limon limon / çiftetelli oyun havası lyrics
- gianluca - mi primer amor [en vivo] lyrics
- raksta & killjae - 5lime lyrics
- certainly so - daydreams lyrics
- haranczykov - bono lyrics