
bubbi morthens - menning lyrics
þurrkaður fiskur og fornar sögur
finnast enn á landi hér
þíðir vindar, vorkvöld fögur
og von um frelsi handa þér
við sjónarhringinn heimur stríðir
hungrar í að gleypa þig
auðmjúkur þú engu kvíðir
allir aðrir selja sig
erlend nöfn þau auka gróðann
allir vilja klæðin fín
tíska er markmið, troðum slóðann
tíska er lífið börnin mín
mcdonald eltum heim í hreysið
hryggðarmynd úr augum skín
bæta ætlar auðnuleysið
aftur verður veröld fín
kentucky fried og kókið herja
kanar íslands opna hlið
herraþjóð fer varla að verja
né vernda landsins sálarmið
í hulduborg er beygður álfur
því barnið hans úr hamri sér
að maður skóp sitt myrkur sjálfur
myrkrið sjálft í huga þér
blöðin prenta, pennar skrifa
pælum aðeins meir í því
oftast fær hún lygi að lifa
leynist menning blöðum í?
stöðin viljug varpar ensku
voðinn leggst á tungu þér
það telja allir ekta lensku
ensku skulum tala hér
stjörnur koma, stjörnur fara
stefnir allt í sömu átt
menning sú er töluð tjara
í tómum kagga bylur hátt
Random Lyrics
- ynd papstar - okay alright! lyrics
- sylvie vartan - le bleu de la mer noire lyrics
- anomalist - hell become a home lyrics
- still in love - it will never be enough lyrics
- mak baheazer - no give up lyrics
- ayesha clinton - rekindle lyrics
- dead tight five - no other sleeve lyrics
- best - the ultimate guide to the lyrics
- dan sanchez - hasta la muerte lyrics
- n8mare (dza) - ash lyrics