
bubbi morthens - pönksvíta no.7 lyrics
ég missti ástina út um gluggann
hún var raunveruleg fyrir mér
hún flaug því ég elskaði skuggann
ég elti skuggann í gegnum litað gler
í undirgrándinu þeir tala um músík
öskubakkarnir fullir af frösum
þeir tala um antíkömersíal svo heví víraða músík
og byltingin dreggjar í hálftómum glösum
en fyrir þig við brennum kertin í sólinni
kertin þau eru tvö
eitt fyrir listina, annað fyrir heimskuna
og á hörpu við spilum pönksvítu númer sjö
ég hitti anarkista sem vildi máta sporin
en fótspor hans var aðeins of breitt
með félögum sínum glottir hann „bubbi boring”
hann mátaði skóna mína og féll,hann stóð of gleitt
þú stóðst upp og sagðir: ég bubbi fíla þig
eftir allt sem þú gerðir mér og hinum
þú talaðir við mig eins og gamlan félaga
en ég get aldrei tekið þér sem einum af mínum vinum
en fyrir þig við brennum kertin í sólinni
kertin þau eru tvö
eitt fyrir listina, annað fyrir heimskuna
og á hörpu við spilum pönksvítu númer sjö
Random Lyrics
- once - para ti lyrics
- q tha hero - random tik tok sound lyrics
- thousand below - los angeles lyrics
- chantry johnson - better than the last one (ella) lyrics
- die höchste eisenbahn - tschernobyl lyrics
- 2 girlz - i want you lyrics
- milli quatro - oe bone byang lyrics
- big sis - the most important banger (of our lives) lyrics
- mike hanopol - baguhin ang mundo lyrics
- encognito - no, i'm still not a soft christian lyrics