
bubbi morthens - sá sem gaf þér ljósið lyrics
bókin segir allt sem er
allt sem er býr í þér
þú ert hann, hann ert þú
hamingjan er hin sanna trú
bókin segir allt sem er
allt sem er býr í þér
elska skaltu náungann
elska skaltu náungann
vita skaltu vinur minn
fyrir ofan himininn
er einn sem ofar öllu er
sá sem gaf þér ljósið
faðir regnsins og regnbogans
réttlát eru verkin hans
trjánum gaf hið græna lauf
gegnum myrkrið ljós hans smaug
þröngur virðist vegur hans
sá vegur er leiðin til sannleikans
orð hans gefa og færa frið
faðirinn vakir þér við hlið
faðir tímans og alls sem er
faðir þess góða sem grær í þér
þjófur eða kóngur hann krýnir þig
í kærleikans nafni snerti mig
þeim sem áttu enga von
ást sína gaf hann og sinn son
menn benda á þig og gera grín
þessi gaf herranum árin sín
bókin segir allt sem er
allt sem er býr í þér
þú ert hann, hann ert þú
hamingjan er hin sanna trú
bókin segir allt sem er
allt sem er býr í þér
elska skaltu náungann
elska skaltu náungann
Random Lyrics
- neevah - i fucking hate it here. lyrics
- paham - duwag lyrics
- phương dung - nếu ta đừng quen nhau lyrics
- лил мартышка (lil martyshka) - casebattle lyrics
- eli conley - strong and tender lyrics
- javisdobs99 - deep web sex ring death cult horseshit lyrics
- thanks god - future pow lyrics
- kirakira glitter - aurora: diário dos sonhos lyrics
- romak & the space pirates - speak e z lyrics
- machine girl - global fandemic track 5 (devil and the fool) lyrics