
bubbi morthens - sem aldrei fyrr lyrics
sem aldrei fyrr lyrics
[verse 1]
suma dreymir gull og græna skóga
og gráta þeir eiga ekki meir
með gallbragð í munni brosa beiskir
og bölva þar til sálin í þeim deyr
og júdas er verðlaus lúser
sem lífinu hafnaði segja þeir
en mig dreymir aðeins þessa einu konu
það er eldfimt loftið þar sem hún fer
það er gott að elska og eiga hennar hjarta
og hún elskar mig eins og ég er
og ég veit hvar frelsið er að finna
í faðmi hennar það bíður eftir mér
[chorus]
og það er vont að vera týndur
í veröld sem engar hefur dyr
og fyrir þá sem aldrei hafa elskað
hlýtur tíminn að standa kyrr
en ég er ástfanginn
sem aldrei fyrr
[verse 2]
jú, mig dreymir aðeins þessa einu konu
og allan þennan þokka sem hún ber
það er gott að elska og eiga hennar hjarta
því hún tekur mér eins og ég er
og ég veit hvar frelsið er að finna
í faðmi hennar það bíður eftir mér
[chorus]
og það er vont að vera týndur
í veröld sem engar hefur dyr
og fyrir þá sem aldrei hafa elskað
hlýtur tíminn að standa kyrr
en ég er ástfanginn
sem aldrei fyrr
Random Lyrics
- rachel dean & david brush - three days without breathing lyrics
- 3010 - atlas lyrics
- frederik cornelius - no one wants to die lyrics
- lil jibo - selfmade lyrics
- gte lil zo - gave you my love lyrics
- abe parker - butterflies lyrics
- the bedroom hour - nocturnal lyrics
- rⱯhm ⚉ - that kinda dead feeling on the inside (yeah yeah yeah yeah) lyrics
- polo čare - outro lyrics
- aka pt - afeição lyrics