
bubbi morthens - vandi er um að spá lyrics
Loading...
nú sitja þeir og drekka drauma úr glösum
drengirnir með slifsin og kollvikin há
á stalli sínum háum híma þeir fölir
og horfa niður mannheima á
hér komst ekki gleðin á
elskulega systir
við skulum dansa betur þegar birtir
nætur langar reika með rauða hvarma
raunaleg eru hljóðin sem hljóma þeim frá
þeir seldu landið, logar gull í haugum
lifandi dauðir friðinn sinn fá
nú sitja þeir og drekka drauma úr glösum
drengirnir með slifsin og kollvikin há
holir eru að innan, enga hafa skugga
aldrei í mannheimum dansað þeir fá
aldrei í mannheimum dansað fá dauðir
dagana björtu aðeins geta þráð
hefnist þeim sjöfalt sem svíkja landið
svitna þá í víti, hljóta enga náð
Random Lyrics
- rock melon - decorah lyrics
- emma louise & flume - all of the worlds lyrics
- andreas hagl - best time ever (deutsche fassung) lyrics
- jimbei - туман (fog) lyrics
- young $age - rock star lyrics
- pocomota - all black boots so the blood don’t show lyrics
- lee hendrix$on - crime pays freestyle lyrics
- sofia kourtesis - sisters lyrics
- the halo effect - if you were here lyrics
- gommykid - fk luw lyrics