azlyrics.biz
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

baggalútur – nú mega jólin fara fyrir mér lyrics

Loading...

ég vakna eftir furðulegt fyllerí.
ég fatta um leið að ég hef látið gabbast enn á ný.
rauðþrútinn af saltáti og sykurinntöku,
síðast vissi ég af mér í einrúmi með smáköku.
ég segi bara eins og er – endum þessa dellu hér.
nú mega jólin, nú mega jólin fara fyrir mér.
uppþembdur af uppseldum jólabjór.
með allra þjóða kjötvörum ég drýgt hef stöðugt hór.
gleyptur er hinn marglitaði makkintosssjóður,
meira að segja gaurinn sem mér finnst alger viðbjóður.
ólgar nú í æðum mér nær einvörðungu bráðið smér.
nú mega jólin, nú mega jólin fara fyrir mér.
enn eitt jólaballaboðið sit.
ég brosi gegnum kjötsvimann og reyni að sýna lit
en við mæjónessustækjuna er minningin svo hrein
af mömmu taka æðiskast og reyna að kyrkja jólasvein.
kaldrifjuð hún kjötið sker, kaldur sviti um mig fer.
þá mega jólin, þá mega jólin fara fyrir mér.
hér heima ríkir andleg hungursneyð
því ég horfði gegnum plottið hjá arnaldi um leið.
jólatréð í stofu húkir, herfilega trist.
það hefur barr og lífsþorsta og mest allt silfurhárið misst.
og áhangandi englaher hefur fyrirfarið sér.
nú mega jólin, nú mega jólin fara fyrir mér.
ef þið sendið fleiri krúttleg kort,
með krökk-m — misvelheppnuðum — sem mættu líða skort,
gríp ég þetta bréfafargan beint úr lúgunni,
brenni svo allt heila klabbið, ásamt pakkahrúgunni.
svo logar þetta gjaf-ger, eins og gene að skjóta sig í cher.
þá mega jólin, þá mega jólin fuðra upp fyrir mér.
þegar þetta frenzý fjarar út,
ég finn það losnar ögn um þennan kvíðarembihnút.
tíni saman skrautið og pínu væminn verð
og vildi ég yrði aftur lítið jólabarn í sleðaferð.
unz raunveruleikinn réttir mér reikning fyrir desember.
þá mega jólin, þá mega jólin bara fokka sér.
þau mega fara fyrir mér.



Random Lyrics

HOT LYRICS

Loading...