
das kapital & bubbi morthens - giftu þig 19 lyrics
dimmir dagar allir eins
kalt loftið syfjaðan bítur
að streðast á móti er ekki til neins
þú verður að vinna, binda járnið maður
þú hefur enga menntun til að ganga um gólf
í jakkafötum brosa vera glaður
þú þarft að þræla frá átta til tólf
passaðu þig drengur, þú sekkur inn í munstrið
íbúðarkaup eru fyrir veika menn
vara þú þig drengur, þú sekkur inn í hulstrið
flýttu þér að synda það er tími til þess enn
við járnið þú stendur lætur þig dreyma
um staði sem þú hefur engin efni á
eins og allir hinir þú verður samt að reyna
að sleppa í gegnum þessi ár
helgarnar þær fara í að leggja saman tölur
mínusa og plúsa og vídeógláp
stundum læturðu það eftir þér að fara út að djúsa
vaknarðu síðan þunnur upp með tóman ísskáp
passaðu þig drengur, þú sekkur inn í munstrið
íbúðarkaup eru fyrir veika menn
vara þú þig drengur, þú sekkur oní í hulstrið
flýttu þér að synda það er tími til þess enn
hvert sinn sem þú vaknar, lítur út um gluggann
blasir við svart tóm með stórhríð
bölvandi þú grefur fésið oní koddann
veist að þú munt tapa ef þú ferð ekki í stríð
fyrr en varir er rómantíkin dáin
brúðkaupsgjafir fánýtt drasl
þú finnur að er ekki lengur sama þráin
sem fær þig til að vakna upp og byrja þitt basl
Random Lyrics
- lela tsurtsumia - mkholod me gamande lyrics
- d billions - playing and learning with balloons & baby db lyrics
- ivan castro - every word (demo) lyrics
- zürii - we b outside lyrics
- madd maxxx - it's... lyrics
- nepumuk - zynik lyrics
- hronotor - hoodoo dust lyrics
- pat hatt - i'm gonna ride lyrics
- libby quinn (ny) - 2020 lyrics
- j2xn & saí! (artist) - finding peace lyrics