hrim (icelandic) - ástarnetið lyrics
Loading...
út í heiminn hugur minn
hvarfla vildi að gamni sínu
en hann féll í faðminn þinn
fjötraður í neti þínu
næmt er ástarnetið þitt
nett eru möskvar riðnir saman
svo það höndlar hjartað mitt
og hugrenningar allar saman
um það leikur líka sá
logi sem ég einn mun kenna
vilji ég þér fljúga frá
fjaðrir mínar allar brenna
hugsaðu ei mín hjartans mey
héðan af ég sloppið geti
það veit guð ég þrái ei
úr þínu hjartans ástarneti
enginn möskvi í því brást
allir hnútar þess úr dyggðum
það er spunnið allt úr ást
og svo niður kljáð í tryggðum
um það leikur líka sá
logi sem ég einn mun kenna
vilji ég þér fljúga frá
fjaðrir mínar allar brenna
hugsaðu ei mín hjartans mey
héðan af ég sloppið geti
það veit guð ég þrái ei
úr þínu hjartans ástarneti
Random Lyrics
- shad - freezetyler lyrics
- saint sister - karaoke song lyrics
- the isley brothers - love the one you're with (live) lyrics
- fake fruit - milkman lyrics
- 周興哲 (eric chou) - 愛在聖誕 (ai zai shengdan) lyrics
- matxx - день наш (the day is ours) lyrics
- no good name - boo hoo lyrics
- babes in toyland - handsome + gretel (lolapalooza, san fransisco, 1993) lyrics
- tno-jay - wavy (feat. otg donnie) lyrics
- miguel alejandro - nena juguetona lyrics