azlyrics.biz
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

kött grá pje - hræljósagangur lyrics

Loading...

[intro]
yea já hérna, hérna
ah f+ck it, f+ck it
þetta er fallegt kvöld
já, þetta er fallegt kvöld, bro
hérna yo
koma svo, yea

[verse 1]
pínu spítt, pínu rautt
hjarta mitt er pínu dautt
dagatalið pínu autt
pósthússtræti pínu blautt
rím og nautn og f+cking nótt
sálartetrið f+cking ljótt
svamla um en sokkinn fljótt
dauður sefur hnokkinn rótt
hvar er vatnið, hver er ég
hver er hún sem sefur hér?
niðurgrafinn fer um veg
ó+gleðin sem það gefur mér
gleðin sem er vín og tóm
meðalið er grín og hjóm
slefað lið sem brýnir róm
það sefar mig, er svín í skóm
hversu lengi skyldi köttur þola við
kóffullur í sturtunni að skola sig
dripp dropp, dropinn er að hola mig
tipp topp, vola við
væmin skrif að rola sið
slompaður um miðjan dag
bálreiður að rægja guð
bölvaldur að styðja það
iss en læta mér nægja stuð
skál og f+ck og fljúgast á
kúra hjá og sjúga smá
drauga vonir hrjúfa hrjá
bláa eins og curaçao
[chorus]
extra extra
extra extra
extra extra
lesið allt um dauða minn
kettir eiga níu líf
úlfar eiga sauðaskinn
extra extra
extra extra
extra extra
lesið allt um dauða minn
kettir eiga níu líf
úlfar eiga sauðaskinn

[verse 2]
rauðvín tæmt þá renn ég út
blautur en samt brenn ég út
barinn, huggun, blíða sull
ást er bull en kynlíf kjút
kjaga, rangla, kvöldið milt
melinoë völdin fær
vessgú, tussa, köld og villt
ljóðin óð og öldin ær
ljóðin dauð og öldin ill
ekkert nema vín og vol
hver er þessi kona hér
og hvers vegna í mínum bol?
þykist sofa, þykist frá
það gekk eitthvað mikið á
liggalá, smá ryki stráð
læðist brott, það er mikil náð
sama prógramm, mikið var
margra daga niðurrif
iðan bylgjast yfir mig
og meira vín það styður við
ómegin og yfirlið
ómægad og aðra chick
óskýrt yfir daðra drykk
eplið sætt en naðran d+ck
smjaðra, f+ck off, flý á dyr
skríð á braut með brotið skott
skríð á braut með skrámað sjálf
kámugt fés og rotið glott
yo, extra extra já
[chorus]
extra extra
extra extra
extra extra
lesið allt um dauða minn
kettir eiga níu líf
úlfar eiga sauðaskinn
extra extra
extra extra
extra extra
lesið allt um dauða minn
kettir eiga níu líf
úlfar eiga sauðaskinn
extra extra
pínu sauðaskinnið
m+th+f+ckas sauðaskynja
því kettir eiga níu líf
og átta farin
kettir eiga níu líf extra, extra



Random Lyrics

HOT LYRICS

Loading...