kriki - opið sár lyrics
ég óska þess að geta verið sjálfri mér nóg
hef þroska til að sjá um mig og vera mér góð
samt óttast ég að fylla aldrei uppí þetta tóm
myndir og minningar minni mitt fylla
trylla mig, verð að stilla mig, mér líður illa
ýti þeim frá mér í flýti ég ýti þeim, ýti þeim frá mér í flýti
helvítis
get ekki losnað við hugsanir
andlitið þitt er hamrað við innanverð augnlokin
snertingin brennd inn í skinnið
og minnið
er minn versti óvinur
tíminn læknar öll sár
en hvað þarf það að taka hann mörg ár?
bærinn er fullur af fyrirtaks fisk-m
sem festast í sífellu á öngulinn minn
en ég kasta þeim aftur í hafið af miskunn
og sigli heim tómhent hvert einasta sinn
verð leið er ég finn
hugann minn bugaðann vill vera þinn
þú ert músa mín og drifkraftur
þetta lag er bara tilraun til að fá þig aftur
takk fyrir allt
fyrir brotnu vængina
rúmið mitt er kalt
en ég fæ alla sængina
tíminn læknar öll sár
en hvað þarf það að taka hann mörg ár?
Random Lyrics
- lovers - cedar falls lyrics
- juvy aka almostdead - 999 lyrics
- ye ali - serious lyrics
- arnaldo antunes - o buraco do espelho lyrics
- voltaire - it's normal for a man lyrics
- the choir - listen to her eyes lyrics
- terri nunn - let me be the one lyrics
- redwine - llantos de otra realidad lyrics
- bruno pelletier - que tu m'aimes lyrics
- lady pank - walker lyrics