azlyrics.biz
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

magnús ómarsson - hljóðtæknir lyrics

Loading...

[verse 1]
hversu lengi ætlar þú að ofvernda drenginn?
láttu ekki svona kona, skerð’ á strenginn
þett’ er mitt líf, mamma, mitt líf
og ef þú vilt þá nota minn hníf
ég er fyrir löngu orðinn fullorðinn maður
tuttugu og fimm og enn þá ofverndaður
ég yrði glaður ef ég fengi að lifa í friði
en því miður er ég enn í móðurkviði
leyfðu mér að vera bara ég
ég skal ekki bregðast þér, alveg
ég veit þú vildir að ég yrði læknir
en það eina sem mig dreymdi var að verða hljóðtæknir

[verse 2]
nei pabbi, langt síðan ég hef séð þig
hefur þér kviðið fyrir því að hitta mig?
hversu margir mánuðir hafa liðið?
mér finnst ég eiga betra frá þér skilið
þú sýnir mér lítinn sem engan áhuga
þett’ er ekki kynslóðabilið, er það?
tókst ekki einu sinni eftir því að еitthvað væri að
fyrr en sonurinn var kominn á bólakaf
ég kann engan betri brandara еn þann
að þú skulir kalla þig endurbættan mann
hvernig væri að sýna aðeins meiri skyldurækni
og styrkja strákinn í að læra hljóðtækni
[verse 3]
ég var alinn upp af langömmu og afa
af því að enginn annar vildi mig hafa
ég reyndi að láta sem mér stæði á sama
vildi ekki vera neinum til ama
allt það sem ég einu sinni byrgði inni
núna brýst það út í tónlistinni minni
því að tónlist er það eina sem ég kann
ég var týndur og hipphopp mig fann
nú vill mamma það að ég verði smiður
hef ekki áhuga, mamma, því miður
af hverju viltu að ég skipti um starf
stuðningur þinn, það er allt sem ég þarf
faðir minn, hann fórnar engu fyrir mig
nema þegar honum vantar sálarfrið
það virðist vera alfarið í mínum eigin höndum
ef að ég vil einhvern tímann læra hljóðblöndun



Random Lyrics

HOT LYRICS

Loading...