memfismafían & sigurður guðmundsson - jólin eru hér lyrics
komum
gægjumst nú fram á ganginn, systir
gerðu það
því þar er allt sem okkur lystir
við höfum beðið kyrrlát
verið stillt og hljóð
við höfum beðið svo skelfing lengi
hlýðin og þolinmóð
sérðu öll dýrindis djásnin
sem dúra hér alein í kvöld?
sérðu sjálft jólatréð
alla þess indælu litafjöld?
jólin eru hér, jólin eru hér
jólin eru handa mér og þér
jólin eru hér, jólin eru hér
jólin eru æ í huga mér
fljót nú
læðumst næst inn í eldhús, kæra
áður en öll lyktin viti nær að æra
við skulum ekkert snerta
verum prúð og þæg
við skulum reyna að bíða
þó okkur sé forvitnin eðlislæg
í stofunni dormar dýrðlegt
og drekkhlaðið allsnægtaborð
er mig að dreyma systir?
ég á ekki eitt einasta orð
jólin eru hér, jólin eru hér
jólin eru handa mér og þér
jólin eru hér, jólin eru hér
jólin eru æ í hjarta mér
Random Lyrics
- egassh - i found you tonight lyrics
- критин106 (kritin) & молодой рубль (molodoy rubl') - airmax lyrics
- abijah tracee - hyperlink car lyrics
- catpile - digital age lyrics
- unlucky morpheus - 万華鏡 (mangekyou) lyrics
- unyluv - fleur lyrics
- 3cat & júlia westermeyer - mai més lyrics
- leslie fish - our fathers of old lyrics
- ding dong & sidequest - jamaican man don't cheat lyrics
- kati k - crashout gehen lyrics