misþyrming - friðþæging blýþungra hjartna lyrics
Loading...
dans örvinglaðra anda
undir festingu fjörvana stjarna
ellin dregur dauðann á langinn
aðframkomið hold
verður frjóvgandi mold
fyrir ættliði volaðra ævidaga
þeir þrá að sleppa frá eymd sinni
en stjörnurnar reynast of fjarlægar…
ættliður helgra afglapa, velkist í frelsarans nafni
hátt stíga eldar í neðra, uppljómun morugra hvela
tár iðrunar falla til fóta, friðþæging blýþungra hjartna
fár volaðra lima og anda, skuggsjá hins himneska herra
vonin smýgur þeim úr greipum
uppljómun spírals blýþungra hjartna
óslitin hringganga helgispjalla
um ókomna tíð
aðframkomið hold
verður frjóvgandi mold
fyrir ættliði volaðra ævidaga
eldur, hlána, járn, kal
og þreifandi myrkur er það
sem koma skal
Random Lyrics
- humble braggers - thought me so lyrics
- eruesudi - fell through lyrics
- tristen beer - fly away lyrics
- mr. sos - the curtain rises lyrics
- cody simpson & the tide - i will never find another you lyrics
- di-meh - faut pas bader lyrics
- sam collins - signifying blues lyrics
- pulloveraaron - 500 dolla$ lyrics
- big lax - the path. lyrics
- kiliseler ve liseler - bir diyeceğimiz var, konuşmayı özlüyoruz (ikinci bap) lyrics