![azlyrics.biz](https://azlyrics.biz/assets/logo.png)
sálin hans jóns míns - undir þínum áhrifum lyrics
ég er ofurseldur þér og uni vel
það er annað, finnst mér, allt mitt hugarþel
sem ég horfi á þig sofa finn ég að
það er brotið nú í lífi mínu blað
ég hef beðið nokkuð lengi eftir þér
svo ég segi það hreint alveg eins og er
og ég hugsa alla daga til þín heitt
alveg ótrúlegt hve allt er orðið breytt
það er varla nokkur heppnari en ég
þessi tilfinning er ævintýraleg
ég er undir þínum áhrifum í dag
og verð áfram, enginn vafi er um það
þú ert náttúrunnar undurf-gra smíð
verður hörpu minnar strengur alla tíð
það er ekki nokkur sem að brosir líkt og þú
og ég lofa gjafir lífsins fyrr og nú
ég er undir þínum áhrifum í dag
og verð áfram, enginn vafi er um það
þú hefur löngu sigrað mig
takmarkalaust ég trúi’ á þig
mitt allt er þitt og verður um ókomin ár
ég mun elska þig allt fram á hinstu stund
uns ég held um síð á feðra minna fund
en að lík-m hef ég tímann fyrir mér
og ég hlakka til að eyða’ honum með þér
það er varla nokkur heppnari en ég
þessi tilfinning er ævintýraleg
ég er undir þínum áhrifum í dag
og verð áfram, enginn vafi er um það
ég er undir þínum áhrifum í dag
og verð alltaf, enginn vafi er um það
enginn vafi er um það
Random Lyrics
- a. cheeze & latex diamond - como mike lyrics
- the verve - three steps lyrics
- marva - domani lyrics
- the walkabouts - straight to the stars lyrics
- kushi1 - july 4 lyrics
- john fullbright - the one that lives too far lyrics
- dalriada - táltosének lyrics
- ballboy - i died for love lyrics
- the fever (es) - waiting for the centipede lyrics
- stonewall jackson - help stamp out loneliness lyrics