skálmöld - að hausti lyrics
tveimur jafnfljótum
tiplar yfir sandinn
landið suður lokkar
tíminn hálfnaður
sömuleiðis vandinn
andið svala okkar
enginn þekkir til
gjörða eða göngu
vona sinna valdur
gömlu konunnar
endur fyrir löngu
kona vindur kaldur
skórinn gatslitinn
skörð eru í kápu
lækir frosnir leka
skemmir göngu með
sögum eða drápu
flækir ísinn fleka
reynslan æskune
rúði inn að skinni
tapa laufin trjánum
rífur gömul sár
slitrótt bernsk-minni
gapa klettar gjánum
[chorus:]
það var haust, við þögðum
allt vort traust, við á þig lögðum
endalaust en lítið sögðum
það var haust, við þöðum
ferðast einsömul
fararskjótinn enginn
gjánum klettar gapa
félagsskapurinn allur
úr sér genginn
trjánum laufin tapa
kaldur vindurinn
klónum sínum sekkur
fleka ísinn flækir
krækiberjablá
lækjarvatnið drekkur
leka frosnir lækir
liðið sumarið
lækkar sól og dofnar
kaldur vindur kona
leggst þar undir stein
örmagna og sofnar
valdur sinna vona
leikur andlitið
ljósrauð morgunglæta
okkar svala andið
líkt og brynhildar
goðin hennar gæta
lokkar suður-landið
[chorus:]
það var haust, við þögðum
allt vort traust, við á þig lögðum
endalaust en lítið sögðum
það var haust [2x], við þögðum
það var haust, í sárum
allt vort traust, við á þig bárum
endalaust en lítið sögðum
það var haust [2x], við þögðum
það var haust, í klettum
allt vort traust, við á þig settum
endalaust en lítið sögðum
það var haust [2x], við þögðum
Random Lyrics
- adán cruz - mirame lyrics
- sule b - intro mvp lyrics
- palinke - j'ai oublié lyrics
- david goudreault - fils de pub lyrics
- papa frack - respect women lyrics
- dudek p56 - od tego się zaczęło lyrics
- twisted insane - stir the pot lyrics
- personeinvacanze - +62 lyrics
- lottery billz - я не верю ни одной суке (ya ne very ni odnoy suke) lyrics
- ayesam - eiserner krieger lyrics