skalmold - heima lyrics
víkingur á vorkvöldi
vakir yfir ánum.
fullþroskaðar fífunar
fellir hann með ljánum.
baldur heitir bóndinn
sem beitir þarna ljánum.
friðartímar, falleg nótt,
fjölskyldan hans sefur.
hæfilega heitan brodd
heimalningnum gefur.
baldur heitir bóndinn
sem bústnu lambi gefur.
gleður bæði goð og menn,
gæfan fylgir honum.
víf hann á sem værðarleg
vakir yfir sonum.
baldur heitir bóndinn
sem býr að þessum sonum.
hann á þessa heiðnu jörð:
hæðir, tún og lækir
baldur heitir bóndinn sem
bagga sína sækir.
baldur heitir bóndinn
sem bagga sína sækir
goðunum þakkar hann góðæristímana langa,
gjöfult er landið frá fjalli og allt út á skaga.
langsverðið hans hefur lengi fengið að hanga
lóðrétt við síðu því engin er þörf á að draga.
blikur á lofti og brátt gæti örlagavindur
blásið um sveitirnar hráslagalegur og kaldur.
við urðarbrunn skuld núna örlagahnútana bindur
uggalausum manni og maðurinn sá heitir baldur.
Random Lyrics
- ron sexsmith - for the driver lyrics
- merle haggard - i don't want to sober up tonight lyrics
- various artists - already gone lyrics
- paul mccartney wings - i've had enough lyrics
- merle haggard - jesus, take a hold lyrics
- kenny rogers - misty lyrics
- sean paul feat sasha - i'm still in love with you lyrics
- diana krall - and i love her lyrics
- donny osmond - keep her in mind lyrics
- asleep at the wheel - bob wills is still the king lyrics