azlyrics.biz
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

andavald – undir skyggðarhaldi lyrics

Loading...

alvaldur
alvaldur konungur neðra
upphimins sólir, þig tignandi
fara sinna ferða

himnanna tjöld, geimanna fjöld
lofa þig lávarður neðra

á himnum í heiði ofar
þig hrapandi stjörnumergðin lofar

hlekkjaðir vér erum, undan andavaldi
við hettu þinni klæðumst þjáðir
undir skyggðarhaldi

hryggðarsporin, herra minn
í neðraríki leið mig inn

ég sá himnana rifna;
úr gapandi tóminu
teygðu sig angar, fálmarar
í hinum ónáttúrulegustu litum
sem engin hafa nöfn

þar við fallinna englaskarans
fölsku sigursöngva
þér hörpur óma í hverfulum
feigðarboðahljóma

gegnum svarta sali
til hins neðra
sálir þessar munu aldrei
til sinna feðra safnast



Random Lyrics

HOT LYRICS

Loading...