azlyrics.biz
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

ari ma & muted – glansandi í frumunum lyrics

Loading...

[vers 1: ari ma]

glansandi í frumunum
ég ansa bara guðunum
sem dansa um í funanum
ég stansa’ í hellismunanum
með suðinu í flugunum
og tuðinu í huganum

innsæinu treystandi
skynsemina beislandi
vinsamlega geislandi
mér finnst það frekar freistandi

að hrökkva’ úr tíma og kála’ honum
slökkva’á tungumálunum
sem stökkva út úr brjáluðum
er rökkvar yfir bálunum
og klökknar yfir sálunum

vökumanna þrengingar
rök og málalengingar
stöku orðasprengingar
tökum þessar tengingar

tyllum þeim á grindina
fyllum upp í myndina
ég neita’ að trúa’ á syndina
þreyti ég nú þindina
og breyti mér í lindina

helli ég úr brunninum
sem vellur út úr munninum
og baða þig í laugunum
sem glaðar slaka’ á taugunum
með hraða eyða baugunum
og laða þig að augunum

sem stara á þig elskandi
þig varanlega frelsandi
úr ímynduðum hugarheim
skrípaleik sem dugar þeim
sem sætta sig við fáfræði
hættum þessu brjálæði!
gættu þess að fá næði
til að hlusta’ á þögnina
skilja agnar ögnina
sem inn í þér er glitrandi
finndu hjartað titrandi
með viljanum óstöðvandi
að þylja þetta’ er örvandi

stundin hún er líðandi
fundin er hún hrífandi
lundin mín er klífandi
háu sælu tindana
spái ég í vindana
óðu ljóðin blásandi
góðu hljóðin másandi
fróðleikurinn fóðrar mig
ljóðhátturinn tjóðrar mig

lífið vil ég ríma um
dýfa mér úr tímanum
með tungumála mættinum
og þunga hjart-slættinum



Random Lyrics

HOT LYRICS

Loading...