elín hall – bjartar nætur lyrics
nú sést loks í land
á þessum voðavetri
svífur yfir sand
boð um tíma betri
ég vil vakna við friðsælan fuglasöng
á meðan sólin slær malbikið
bjóða í kaffi og kleinur á svölunum
og safna freknum á andlitið
því mér tækist seint að gleyma
sumrin sem ég varði heima
bjartar nætur koma enn á ný
og ég vil ekki missa af því
ó vil ekki missa af því
þú horfir á mig á hlærð
beibí keyrum hringinn
fegurst fjallafærð
senn blóma berjalyngin
þræðum fáfarinn veg
það finnur okkur enginn hér
í grasi við blágrenisrót
við skulum blasta bubba í botn
veistu um eitthvað eins gott
og að njóta í norðursól?
því mér tækist seint að gleyma
sumrin sem ég varði heima
bjartar nætur koma enn á ný
og ég vil ekki missa af því
ó vil ekki missa af því
ó vil ekki missa af því
ó bjartar nætur koma enn á ný
mmm…
bjartar nætur
Random Lyrics
- bastard warlocks – rabbit hole pt.2 (zero waypoints) lyrics
- sunny war – swear to gawd lyrics
- chthonic – 第五節 侵/ invasion lyrics
- st. elmo’s fire – the ahasuerus and flint traveling carnival show lyrics
- bodysnatcher – dead rabbit lyrics
- clem27song – mon dernier espoir lyrics
- bon calso – adictiva lyrics
- barking rayan – hum doob rahe hain lyrics
- yng mocha – serce lyrics
- greenleaf – tides lyrics