ellen kristjánsdóttir – hærra minn guð til þín lyrics
hærra, minn guð, til þín,
hærra til þín,
enda þótt öll sé kross
upphefðin mín.
hljóma skal harpan mín,: hærra, minn guð, til þín,:,:
hærra til þín.
villist ég vinum frá
vegmóður einn,
köld nóttin kringum mig,
koddi minn steinn,
heilög skal heimvon mín
.:,: hærra, minn guð, til þín,:,:
hærra til þín.
sofanda sýndu þá
sólstigans braut
upp í þitt eilífa
alföðurskaut.
hljómi svo harpan mín,: hærra, minn guð, til þín,:,:
hærra til þín.
árla ég aftur rís
ungur af beð.
guðs hús á grýttri braut
glaður ég hleð.
hver og ein hörmung mín
hefur mig, guð, til þín,
hærra, minn guð, til þín,
hærra til þín.
lyfti mér langt í hæð
lukkunnar hjól,
hátt yfir stund og stað,
stjörnur og sól,
hljómi samt harpan mín:,: hærra, minn guð, til þín,:,:
hærra til þín.
Random Lyrics
- james barrett – the window lyrics
- rael – mp3 lyrics
- sia – freeze you out lyrics
- nashville pussy – she’s got the drugs lyrics
- w.a.s.p – scream lyrics
- jagger spacy – when i’m gone lyrics
- capital inicial – me encontra (ao vivo) lyrics
- headstoned – evolution is relative lyrics
- ratna antika – sido rondo lyrics
- godsmack – life is good lyrics