azlyrics.biz
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

gkr – tala um lyrics

Loading...

hvað ertu að tala um
heldur’að þú getur gert það sem við gerum, nei
ég verð að segja það efast ég um, já
hvað heldur’eiginlega að við séum ha?

ég gaf út morgunmat og allir fór’að syngja það
hugsað’um næsta plan já hvað ég ætt’að gera næst
svo stórar hugmyndir að ég fékk næstum kvíðakast
en ég er með þetta og þið munið sjá seinna

já og bangerboy á beatinu (marteinn)
þú veist vel að þá þarf að turna upp
það á að hafa gaman að þessu
er alveg hættur að reyna geðjast öllum

því sumir vilja tal’en mér er sama um það
þú veist að ég læt drauma mína verða’ð veruleika
ég stend með sjálfum mér til þess dags sem ég mun deyja
já alveg sama hvað þú segir sama hvað þér finnst um það svo

hvað ert’að tala um hvað ert’að tala um
hvað ert’að tala um hvað ert’að tala um já
hvað ert’að tala um hvað ert’að tala um já
hvað ert’að tala um hvað ert’að tala um

hvað ertu að tala um
heldur’að þú getur gert það sem við gerum, nei
ég verð að segja það efast ég um, já
hvað heldur’eiginlega að við séum ha?

hef margt í höndunum sem fáir hérna vita um
og ef að stórt er spurt – ekki mikið af svörum
kinka bara kollinum, vona að þú farir burt..
æææ bíddu okei okei sko

það er party og þú ert velkomin/nn
(velkominn)
ég hef aldrei reynt að falla inn
(falla inn)
því frekar vil ég standa út
þú veist að ég er fædd stjarna eins og krossfiskur

og ef þú getur betur endilega gerðu það
því alltof margir tal’en þor’ekki að framkvæma
en sjáðu mig, ég framkvæmi, ég geri hlutina
ég fer upp eins og blaðra á meðan að þú blaðrar svo

hvað ert’að tala um hvað ert’að tala um
hvað ert’að tala um hvað ert’að tala um já
hvað ert’að tala um hvað ert’að tala um já
hvað ert’að tala um hvað ert’að tala um

hvað ertu að tala um
heldur’að þú getur gert það sem við gerum, nei
ég verð að segja það efast ég um, já
hvað heldur’eiginlega að við séum ha?



Random Lyrics

HOT LYRICS

Loading...