azlyrics.biz
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

hjálmar – mött er hin meyrasta lyrics

Loading...

mött er hin meyrasta taug
meðulin óhæf til bótar
í myrkrinu dufla við draug
dragandi fjötur án fótar
grá veður, grugguga laug
gisti ég forðum og skemmti
skrattanum, skellti og flaug
slóttugur frá því sem henti

en óð fluga vappar um velsæmi mitt
og vendir sér síðan að drottni
hendir sér flöt upp í hásæti sitt
heygður hún segir hann rotni

menn eru meinsemdar grey
markleysur hafa við ljótar
truflaðir, trúa því ei
að tímann og sálirnar mótar

tarfur sem telur sig mann
en maðurinn telur sig drottinn
brennir og brýtur sig rann
brosir svo efstur og montinn

en ástin mun rísa og fljóta hér fram
og fylla loks hjartað kalda
þó fenni í sporin hún lifir áfram
um eilífð og aldir alda



Random Lyrics

HOT LYRICS

Loading...