jórunn viðar – gestaboð um nótt lyrics
feginn er ég nóttunni
sem hlýjum vængjum vefur
vini mína og dagsins
og mér gefur aðra nýja:
hýreyg stjarna úti í geimi
stundar lengi
frestað hefur
að steypa sér í djúpið
(máninn sefur milli skýja)
og dularfullar verur koma
dansandi inn um glugga
við mér stugga
stöfum björtum
stjaka frá mér hverjum skugga
setjast hjá mér kankvíslegar
og þær klaka blítt við eyra
(hvílík kynstur sem þær kunna af vísum
viltu heyra?)
einn er minnstur allra í hópnum
(glettinn álfur sem ég sjálfur)
ber í hendi bláa fjöður
(sumargjöf frá góðum föður)
og hann leggur mjúkan oddinn
mér að brjósti
skýjaglópnum
og hann kitlar hjartabroddinn
svo ég kippist við af gleði
ó, ég legði allt að veði
til að líf af þessu tæi
færi eldi um allar jarðir
allar sveitir, alla bæi
þótt ég dæi síðan dæi
Random Lyrics
- le luci della centrale elettrica – una cosa spirituale lyrics
- 50 cent – your life’s on the line lyrics
- farid jafarli – ego-death lyrics
- the uncluded – eyeball soup lyrics
- agnetha & linda – bjällerklang lyrics
- slim thug – thicka than water flow lyrics
- e.m.d. (swedish pop group) – anywhere is paradise lyrics
- too $hort – recognize game lyrics
- helena paparizou – σε ποιόν να μιλήσω (se pion na miliso) lyrics
- on the rocks – bad romance lyrics