moses hightower – 101 ósómi lyrics
gæfan er svo fallvölt
og gleðin er svo naum
veröldin er grimm
og óárennileg
hamingjan er stopul
mannskepnan er aum
veðráttan er vond
og verstur allra er ég
en lítum framhjá því
þá held ég ekkert mæli móti því
ekkert sem mig rekur minni í
ekki neitt
að slaka aðeins á
þó að veröldin sé fjandsamleg
við skulum taka lítinn laugaveg
ertu með?
ástin er svo harðhent
það hendir okkur flest
og virkilega grátlegt
hvernig stundum fer
já, gæfan er oft fallvölt
og veröldin svo grimm
en mér sýnist hún samt skárri
á rúntinum með þér
já, veistu hvað mér finnst?
ég held ég ekkert mæli móti því
ekkert sem mig rekur minni í
ekki neitt
að slaka aðeins á
þó að veröldin sé fjandsamleg
við skulum taka lítinn laugaveg
ertu með?
(…)
já, veistu hvað mér finnst?
ég held ég ekkert mæli móti því
ekkert sem mig rekur minni í
ekki neitt
að slaka aðeins á
þó að veröldin sé fjandsamleg
við skulum taka lítinn laugaveg
ertu með?
Random Lyrics
- feid & yandel – pa janguiar lyrics
- طه نوري – rabi 3tini jna7 – ربي عطيني جناح – taha nouri lyrics
- slim griddy – not that far away lyrics
- horus su maccu – bottarga freestyle lyrics
- kill ebola – wasted lyrics
- nada nuestro – paramos aburridos lyrics
- emmy curl – mirandum lyrics
- vin jay – a conversation with my younger self lyrics
- serengeti – meeting up lyrics
- viktör (esp) – guap lyrics