azlyrics.biz
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

skálmöld – för lyrics

Loading...

haldið upp á heiðina með mér
höfuðin fjúka í nótt
guðirnir gefa okkur þrótt
guðirnir veita okkur þrótt til að sigra
vinir, ykkar vígamóði her
veitir mér liðveislu í nótt
guðirnir gefa okkur þrótt
guðirnar veita okkur þrótt til að sigra

sver ég nú og sverðið legg
svírann á og sundur hegg
jórinn þreyttur, ég er sár
jökullinn yfir gnæfir hár

blóðugur með brotna hönd
berst ég einn um ókunn lönd
held ég enn í veika von
vígamaður óðinsson

göngum móti glötun og dauða
gjótur þar bíða og fen
þar geta tryllingsleg trén
tekið þig niður og skellt þér á knén
nýtum daginn og nóttina rauða
neitum að ganga í fen
vörumst að taki’ okkur trén
gegn tý, þór og óðni við föllum á knén

ófærur og dauðans dýr
drepa þann sem burtu flýr
höldum áfram, heiðnir menn
himnaranir þeir falla senn

tölunni við týnum vrátt
tættir sundur smátt og smátt
held ég enn í veika von
vígamaður óðinsson

frændur mínir, fóstbræður
fylgið mér um ófærur
deyi sá er deyja á
dugi sá er ætla má

held ég upp á heiðina
held ég verstu leiðina
held ég enn í veika von
vígamaður óðinsson



Random Lyrics

HOT LYRICS

Loading...