skálmöld – urður lyrics
[verse 1: baldur]
ég er urður, köld og kæfandi
kraftur minn yfir öllu er gnæfandi
fortíðin orðin, þú færð ekki neinu að breyta
reynist þér hvorki sterk né styðjandi
staulastu áfram götuna biðjandi
tíminn er einstigi, trúðu og hættu að leita
[verse 2: baldur & böbbi]
orðið er orðið, liðið er liðið
gróið er gróið og sviðið er sviðið
horfið er horfið, farið er farið
gert er gert og ekkert skiptir
og ekkert skiptir máli
og ekkert skiptir og ekkert skiptir máli
[bridge: gunnar & böbbi]
hún er vís og okkar elst
ógn í hennar gjörðum felst
urður
[instrumental]
[chorus: all & böbbi]
alltaf eru urðar vegir
erfiðir og hættulegir
enginn breytir hennar háttum
hún sér þig úr öllum áttum
allt er gert og gert er orðið
göldrótt leggur spil á borðið
skuggar lifna, skuggar dvína
ekkert skiptir máli
urður
urður
[verse 3: baldur]
ég еr urður, ég er köld og kæfandi
kraftur minn yfir öllu er gnæfandi
reynist þér hvorki stеrk né styðjandi
staulastu áfram götuna biðjandi
[outro: baldur & böbbi]
orðið er orðið, liðið er liðið
gróið er gróið og sviðið er sviðið
horfið er horfið, farið er farið
gert er gert og ekkert skiptir máli
og ekkert skiptir máli
Random Lyrics
- the night gardener – change of heart lyrics
- bastian baker – can’t be loved lyrics
- suede – a man’s song (heroine)[four track demo] lyrics
- sutaijian – vessel system lyrics
- cabal (mobstyle music) – one dark night lyrics
- morrissey – suspicious minds lyrics
- coco montoya – good man gone lyrics
- kenna childs – come unto him lyrics
- choi yu ree (최유리) – 방황하는 젊음 (wandering youth) lyrics
- genagatitos – falsas amistades lyrics